Friday, October 17, 2008

Innan skamms.....

.....mun þessi síða prýða mestu tískuslys síðustu ára. Það sem þau eiga öll sameiginlegt er að hafa orðið á Reynishólum.

Þeir eru ófáir einstaklingarnir sem hafa tekið þátt í trendsetti þessu, því þegar á Reynishólum þá finnur maður fyrir öðru og næmara fasjónsensi, það er hreint einstök upplifun. Þvílík tilfinning þegar maður áttar sig á því að Don Cano úlpan góða er líklega það smartasta sem til er, að það er hreinn óþarfi að klæðast einhverju öðru en síðum nærbuxum og lummulegri búlgupeysu marga daga í röð, að 400 ára gamlar götóttar og músétnar húfur eru vanmetnar í flestum menningarsamfélgögum og fleiri aðrar ótrúlegar hugljómanir.

Á Reynishólum eru þetta þó ekki tísku"slys" eins og sumum íbúum metropolitan-borga kann að þykja, nei.........þetta eru steitment!

SO LOOK AND LEARN.............RECOGNIZE!!!!!